Fótboltastúlkur á unglingsaldri uppgötvuðu að eftirlitsmyndavélar væri í gistirými þeirra, á fótboltamótinu Reycup. Vísir greindi fyrst frá.
15 og 16 ára stúlkur úr fótboltaliði Selfoss er gistu í Laugardalshölllinni á meðan á móti stendur, urðu varar við að myndavélar væru í gangi í svefnrými þeirra. Þeim var ekki tilkynnt um að myndavélar væru á staðnum og létu þær foreldra sína og þjálfara vita.
Fundust þar sem stúlkurnar sofa og fafa fataskipti
Stúlkunum hefur verið verulega brugðið því þær höfðu meðal annars fataskipti inn í rýminu sem myndavélarnar eiga að hafa fundist. Haft er eftir foreldri einnar stúlkurnar að þær hafi rekist á tvo stóra skjái, með nokkrum myndavélum áföstum sem sýndu meðal annars svefnrými þeirra.
Þjálfari staðfestir ekkert
Ekkert hefur fengist staðfest frá Gunnari Rafni Borgþórssyni þjálfara stúlknanna og vildi hann heldur ekki staðfesta að málið væri komið inn á borð til lögreglu. Hann sagði að fundað yrði um málið í dag.