Guðmundur Felix Grétarsson, birti myndband í morgun á Instagram-síðu sinni, og hefur það strax vakið mikla athygli. Þar sést Guðmundur meðal annars lyfta lóðum og kasta bolta en gekkst hann undir aðgerð í byrjun síðasta árs þar sem græddir voru á hann handleggir. Árangur aðgerðarinnar hefur nú þegar verið mun betri en læknar þorðu að vona en myndbandið setti Guðmundur saman fyrir læknateymið.
View this post on Instagram
Eftir aðgerðina var talið að taugarnar myndu vaxa inn í hendurnar, en aðeins um það bil einn millimetra á dag. Þá var talið að hann gæti þurft að bíða í tvö ár eftir því að fá mögulega tilfinningu í fingurna. Ljóst er að taugarnar hafi vaxið mun hraðar en búist var við og árangurinn hreint ótrúlegur. Guðmundur getur klætt sig í föt, borðað með skeið og meira að segja, farið í ræktina.