Myndbirting Arion banka á ljósmyndum af liðum í Arion banka-mótinu í fótbolta barna í fyrra var gegn samþykki foreldra og forráðamanna. Þetta er niðurstaða Persónuverndar.
Vitnar Persónuvernd í formálsorð reglugerðar ESB en þar kemur fram persónuupplýsingar barna eigi að njóta sérstakrar verndar, einkum er varðar notkun persónuupplýsinga barna í markaðssetningarskyni, að því er fram kemur á vef RÚV.
Segir í greininni að Arion banki hafi hins vegar álitið myndbirtinguna heimila á grundvelli samþykkis foreldra og forráðamanna og að myndbirtingin væri samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og lögmætra hagsmuna.
Taldi Persónuvernd Arion banka ekki eiga lögvarða hagsmuni af myndbirtingunni og í kjölfarið áréttaði hún tilmæli sín frá 2018 um að aðilar sem koma að starfi með börnum noti ekki Facebook eða sambærilega miðla sem samskiptamiðla fyrir miðlun persónuupplýsinga um ólögráða börn.