- Auglýsing -
Maðurinn sem lést er sexhjól sem hann ók valt í Reyðarfirði á fimmtudaginn síðastliðinn hét Andrés Elisson. Andrés var fæddur árið 1957 og var búsettur á Eskifirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvær uppkomnar dætur. Frá þessu var greint í Facebook-færslu lögreglunnar á Austurlandi.