- Auglýsing -
Pilturinn sem lést af slysförum við Framhaldsskólann á Laugum hét Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson. Kristinn var nítján ára og nam við skólann.
Kristinn lést 2. febrúar síðastliðinn er hann varð fyrir bíl þegar hann var að renna sér í snjó í brekku við skólann ásamt vinum sínum. Útivistardagur var í skólanum þann dag.
Á morgun verður haldin minningarathöfn í matsal Framhaldsskólans á Laugum. Samkvæmt tilkynningu á vef skólans mun Þorgrímur Daníelsson sóknarprestur leiða athöfnina.