Mannanafnanefnd samþykkti sjö beiðnir um ný eiginnöfn með úrskurðum í apríl.
Nöfnin sem nefndin samþykkti í apríl eru kvenmannsnöfnin Snæsól, Náttúra, Kíra og Lucia og karlkynsnöfnin Neó, Kusi og Liam. Nefndin hafnaði þá þremur eiginnöfnunum í apríl, það eru nöfnin Midian (kk), Marzellíus (kk) og Jette (kvk).
„Eiginnafnið Marzellíus telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‘z’ telst ekki til íslenska starfrófsins þótt hann komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem hafa unnið sér hefð,“ segir meðal annars í úrskuði um nafnið Marzellíus.
Um nafnið Natúra segir: „Eiginnafnið Náttúra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Náttúru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.“
Hægt er að lesa um úrskurði nefndarinnar hérna.
Sjá einnig: Nú má heita Systa og Lynd en ekki Sukki