Ný kórónuveiruhópsmit hafa blossað upp víða um Bandaríkin síðan lífið fór smátt og smátt að færast í fyrra horf og barir, klúbbar, kirkjur og fyrirtæki opnuðu á nýjan leik. New York Times fjallar um málið, þar segir að ný hópsmit hafa komið upp í bæði stórum borgum og litlum bæjum víða um Bandaríkin og að þróunin gefi skýra mynd af því hversu hratt kórónaveiran dreifir sér.
Hópsmit í Bandaríkjunum komu áður aðallega upp á elliheimilum, í fangelsum og í matvælaverksmiðjum en núna þegar verið er að reyna að koma hjólum atvinnulífsins af stað aftur eru nýjar tegundir hópsmita að blossa upp.
Kirkja í Oregon, strippstaður í Wisconsin og bar í Louisiana eru meðal þeirra staða þar sem hópsmit hafa komið upp.
Þá kom upp hópsmit í kristilegum sumarbúðum skammt frá borginni Colorado Springs þegar ellefu starfsmenn smituðust af COVID-19.
Einnig hafa komið upp hópsmit hjá starfsmönnum spilasala, veitingastaða og hótela í Las Vegas en spilavítin í Las Vegas voru opnuð aftur 4. júní.
„Við þessu mátti búast þegar við afléttum höftum og lokunum,“ er haft eftir Rebeccu Christofferson smitsjúkdómasérfræðingur við Louisiana State University í umfjöllun New York Times.
Nú hafa rúmlega tvær milljónir manna í Bandaríkjunum greinst með COVID-19, 2.312.302 nánar tiltekið, og staðfest dauðsföll af völdum sjúkdómsins þar í landi eru orðin 120.402 samkvæmt tölum af vef Johns Hopkins háskólans.