Enn er ekki ljóst hvort utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra muni hljóta toppsætið í baráttunni um forystusætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Þó virðist sem fylgi Guðlaugs sé að aukast eftir því sem talningu atkvæða fjölgar.
Það mun koma í ljós á lokametrunum hvort þau Guðlaugur Þór eða Áslaug Arna munu verma toppsætið.
Athygli vekur að Brynjar Níelsson er í fjórða sæti samkvæmt nýjustu tölum en fáir lögðu í að nefna hvar hann myndi lenda í prófkjörinu.
Gengi þeirra Birgis Ármannssonar, sem stefndi á 2-3. sæti, svo og Kjartans Magnússonar, sem stefndi á 3-4. sæti, hlýtur einnig að standa nokkuð undir væntingum þeirra. Miðað við nýjustu tölur er Birgir í sjötta sæti og Kjartan í því sjöunda.
Talin hafa verið 3.113 atkvæði og er Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra efstur með 1.525 atkvæði.
Í öðru sæti er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra með 2.116 atkvæði í 1. – 2. sæti.
Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 1.260 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.
Í fjórða sæti er Brynjar Níelsson með 1.164 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.
Í fimmta sæti er Hildur Sverrisdóttir með 1.573 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.
Í sjötta sæti er Birgir Ármannsson með 1.849 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.
Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 1.484 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.
Í áttunda sæti er Sigríður Á. Andersen með 1.373 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.