- Auglýsing -
Twitter-notandinn Þorvar Bjarmi sá sig knúinn til að deila myndbandi með fylgjendum sínum á Twitter sem hann tók í Staðarskála. Á myndbandinu má sjá einstakling borða pulsu með hnífapörum.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem sést til fólks borða pulsu á þennan nýstárlega hátt.
Einn netverji vill meina að um lögreglumál sé að ræða og merkir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í athugasemd.
Þetta var sem sagt að gerast í Staðarskála pic.twitter.com/bpFIixbkwi
— þorVAR Bjarmi (@Bjarmih) February 15, 2020
Þá hafa nokkrir bent á Seinfeld-þátt í þessu samhengi sem fjallar um það þegar matarvenjur Mr. Pitt, yfirmanns Elaine Benes, verða til þess að fólk byrjar að borða súkkulaðistykki með hnífapörum.