- Auglýsing -
Met fjöldi greindist hér á landi með Covid-19 í gær, eða 1.856 manns. Fyrra met var í lok janúar en þá greindust alls 1.569 á einum degi.
Þá var greint frá því að kona á sjötugsaldri hefði látist úr Covid-19 á gjörgæsludeild Landspítala í gær. Liggja nú alls 21 á spítala með Covid, tveir eru á gjörgæslu og þar af einn í öndunarvél.
Á vef Covid.is er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar en nýjustu smittölur verða aðgengilegar á vefnum á mánudaginn.