- Auglýsing -
Óveður setur mark sitt á færð á Reykjanesbraut. Umferðartafir eru á Brautinn vegna þessa. Nokkur ökutæki hafa runnið útaf en „blessunarlega án meiðsla“ eins og segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Grindavíkurvegur er einnig orðinn þungfær og er hann tímabundið lokaður í norðurátt vegna ökutækis sem situr fast við Gíghæð.
Vegfarendur eru beðnir að fara varlega og muna að miða ökuhraða við aðstæður.
Veðurspáin fyrir helgina er afar slæm og gular veðurviðvaranir um allt land.