Ökumaður var stöðvaður fyrr í dag fyrir ofsaakstur í Árbænum. Viðkomandi mældist á 140 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði eru 80 kílómetrar. Má viðkomandi búast við að verða sviptur ökuréttindum í einn mánuð auk sektar upp á 180 þúsund krónur og þriggja refsipunkta.
Lögreglu barst tilkynning um æsta konu í Hlíðunum þar sem hún neitaði að yfirgefa húsnæði en lét þó segjast þegar lögregla mætti á staðinn.
Lögreglu tókst að fá mann sem sýndi gangandi vegfarendum ógnandi hegðun í miðbænum til að yfirgefa svæðið eftir langt tiltal. Ekki er vitað hvað manninum gekk til.
Fólki í hverfi 103 hefur líklega fundist maður sem hringdi dyrabjöllum ólíklegur til að vera að gera saklaust dyra-at þar sem lögreglu var tilkynnt var um grunsamlega hegðun hans.
Lögreglu barst svo tilkynningar óæskilegar mannaferðir, annarsvegar um óvelkominn aðila í stigagangi í Garðabænum og hinsvegar grunsamlegar mannaferðir í Kópavogi.
Tilkynnt var um innbrot í Breiðholtinu og er málið er í rannsókn.