Lögregla var kölluð út vegna manns sem sýndi ógnandi hegðun á almannafæri. Hann hafði í hótunum við lögreglumenn sem komu á vettvang log þverskallaðist við að fara að fyrirmælum. Ofstopamaðurinn sagðist hafa burði til að berja lögreglumenn. Hann var yfirbugaður og fluttur á lögreglustöð þar sem hann gistir nú í fangaklefa.
Maður með hamar að vopni er sakaður um líkamsárás. Málið er í rannsókn.
Manni í annarlegu ástandi var vísað út af veitingastað. Annar, ofurölvi, var hirtur upp af lögreglu og hann læstur inni í fangaklefa.
Á svæði Hafnarfjarðarlögreglu bar fátt annað til tíðinda en að vespu var stolið. Óljóst með málalok.
Grunsamlegar mannaferðir í íbúðahverfi vöktu athygli íbúa. Lögregla fór þegar eftirlit í hverfinu en ekkert glæpsamlegt uppgötvaðist.
Ölvaður og réttindalaus ökumaður var gripinn. Honum verður gerð refsing. Annar ökumaður var á mikilli hraðferð um íbúðahverfi þegar lögreglan varð á vegi hans. Hann reyndist vera á 143 kílómetra hraða þar sem hámarkið er 80 kílómetrar á klukkustund.