Lögreglu barst tilkynning um heldur undarlegt ökulag klukkan eitt í nótt. Tilkynnandi varð vitni að því þegar bifreið var ekið þvert yfir hringtorg og inn á bílastæði verslunar. Ökumaður brá sér út úr bílnum líkt og ekkert hefði í skorist og gekk inn í verslun. Þegar lögregla var á leiðinni á vettvang mættu þeir bifreiðinni og stöðvuð hana samstundis. Maðurinn er grunaður um eignaspjöll auk þess að hafa ekið undir áhrifum áfengis.
Um það bil klukkustund síðar handtók lögregla annan ökumann. Þegar komið var á lögreglustöð var blóðsýni tekið úr honum en er hann grunaður er um akstur undir áhrifum áfengis. Gisti hann bak við lás og slá þar sem málið þarfnast rannsóknar.
Samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin með rólegra móti og ekkert fréttnæmt gerðist í Kópavogi og Breiðholti.