Tilkynnt um tilraun til ráns í Árbæjarlaug í gær, rétt fyrir 21:00. Kona kom í afgreiðslu og ógnaði starfsfólki og heimtaði peninga en endaði á að yfirgefa vettvang án þess að fá peninga.
Konan fór því næst inn á heimili í hverfinu og stal bíllyklum. Húsráðandi náði að stöðva konuna þar sem hún var komin inn í bifreið hans. Konan var handtekin og vistuð fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Um klukkan 01:00 í nótt var tilkynnt um þjófnað í miðbænum. Erlendir ferðamenn höfðu skilið bakpoka sinn eftirlitlausan á veitingahúsi í skamma stund. Þá hafði maður farið í pokann og stolið þaðan áfengisflösku og greiðslukortum. Atvikið náðist á eftirlitsmyndavél.