Óvenjuleg og stórhættuleg uppákoma varð í nótt þegar ökumaður ók á móti umferð og og síðan ítrekað yfir á rauðu ljósi. Bifreið ökuníðingsins var útbúin forgangsljósum og með með sírenu. Lögreglu barst tilkynning um að bifreiðinni hefði verið ekið fast upp að næstu bifreið, kveikt á sírenu og blikkljósum síðan ekið á móti umferð. Ökumaðurinn var stöðvaður skömmu síðar þar sem hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Eftir viðræður við ökumanninn, sem er 65 ára, var hann látinn laus og honum gert að fjarlægja ólöglegan neyðarbúnað úr bifreiðinni.
Uppákoma varð í Hafnarfirði um miðja nótt þegar bifreið með unglingum var stöðvuð. Ökumaðurinn reyndist vera 13 ára og eðli málsins samkvæmt án ökuréttinda. Með í för voru þrír farþegar á svipuðu reki. Drengirnir höfðu ekið frá Reykjanesbæ til Hafnarfjarðar og sögðust vera að sækja vin sinn í Hafnarfjörð. Foreldrar og Barnavernd voru kölluð til.
Fjölmennt unglingapartý var haldið í Elliðaárdal í gærkvöld. Í fyrstu var talað um 200 – 300 unglinga. Lögregla hafði afskipti af nokkrum þeirra. Áfengi var hellt niður og hringt í foreldra. Nokkru síðar mætti lögregla aftur á voru þá fáir unglingar eftir og svæðið rýmt.