Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, varð 70 ára í gær. Ólafur Ragnar Grímsson, eiginmaður hennar, dekraði við hana í tilefni dagsins.
Ólafur birti mynd á Twitter þar sem hann sýndi fylgjendum sínum hvað hann gerði fyrir Dorrit á afmælisdegi hennar. Bleikar rósir, bleikar blöðrur, sérmerkt rauðvínsflaska og girnileg súkkulaðikaka er meðal þess sem Dorrit fékk í tilefni stórafmælisins.
„Dagur fyrir Dorrit,“ skrifaði hann með myndinni. Færsluna má sjá hér fyrir neðan.
A Day for Dorrit! pic.twitter.com/IaVBveKtMo
— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) January 12, 2020