Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarstjóori Reykjavíkur og lǽknir bendir fólki á að hlusta á viðtal sem tekið var við hann á útvarpsstöðinni Útvarp Saga. „Hlustið á þáttinn frá 46:00 mínútum, þar sem er rætt um yfirgengilegt einelti gegn persónu minni af vinstrimönnum og fjölmiðlum þeirra sem var ætlað að koma mér í gröfina.“
Ólafur segir að „eineltið stóð yfir árin 2007-2013. þ.e. í fimm ár eftir að ég var borgarstjóri og fram þyrfti að fara fram lögreglurannsókn á þessum glæp.“
Hann segir að einelti í stjórnmálum lifi enn afar góðu lífi, eins og að hans mati, dæmin sanni:
„Nú hafa vinstri menn tekið upp nýja aðferð við einelti sitt með því að útskúfa Sjálfstæðisflokknum frá því að koma að borgarmálum með góðri aðstoð Fréttablaðsins, RÚV og Kjarnans. „Almannamiðillinn“ RÚV var allra grimmastur í minn garð og vinnubrögð hans þá eins og nú ólíðandi.“