ORÐRÓMURBjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sýnt festu og styrk í stríðinu við kórónuveiruna. Undir niðri í flokknum kraumar þó. Engir kærleikar eru á milli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Bjarna og víst að það mun hafa afleiðingar. Bjarni hefur styrkt sig með því að fá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í framvarðasveitina. Líklegt er að þær muni ýta Guðlaugi Þór niður og til hliðar fyrir næstu kosningar. En Guðlaugur hefur þó sýnt að hann hefur níu líf. [email protected]