- Auglýsing -
Mikil ólga hefur verið meðal íbúa í Bústaða- og Fossvogshverfi vegna fyrirhugaðra breytinga við Bústaðaveg.
Á fundi íbúasamtaka hverfissins var samþykkt að skora á Dag B. Eggertsson borgarstjóra að framlengja frest til athugasemda um skiplagsbreytinguna. Fresturinn rennur út 15.desember næstkomandi en vilja samtökin framlengingu til 1. Apríl.
Mikill meirihluti þeirra sem mættu á fundinn voru sammála en fór hann fram í síðustu viku.
Ekki liggur fyrir hvort fallist verði á framlenginguna sem íbúar óskuðu eftir.