Það er ekki lengra síðan en þann 11. febrúar 2021 sem olía komst út í Elliðaár með tilheyrandi mengun. Nú hefur það gerst eina ferðina enn. Hafþór Hilmarsson deildi myndbandi af olíumengun í ánni á Facebook síðu sinni, myndbandið má sjá hér
Áhrif á viðkvæmt lífríkið mjög slæm
Mengun hefur borist hvað eftir annað í ánna. Mikil hætta er fyrir viðkvæmt lífríkið þegar olía kemst út í árnar. Fólk hefur verið beðið ótal sinnum, að hella ekki olíu eða öðrum spilliefnum í niðurföll og tilkynna um það ef leki frá bifreiðum hafi orðið. Olíumengun hefur gert vart við sig ár eftir ár og ekkert lát virðist vera á.
Svo virðist sem engin lausn sé á vandamálinu ef marka má tíðni olíumengana í Elliðaám.