Í dagbók lögreglu er alltaf eitthvað að frétta.
Maður í annarlegu ástandi vistaður í fangaklefa þar sem hann var ekki í ástandi til að vera úti á meðal fólks. Manninnum sleppt seinnipartinn þegar ástand hans lagaðist en engar kröfur voru á hann.
Par handtekið í hverfi 105 vegna húsbrots, þau vistuð í fangaklefa.
Innbrot og þjófnaður í fyrirtæki í hverfi 210, bifreið og einhverjum lausamunum stolið, málið í rannsókn
Aðili handtekinn í hverfi 200 vegna innbrots og þjófnaðar, maðurinn grunaður um fleiri innbrot og var hann vistaður í fangaklefa og bíður skýrslutöku.
Ekið á ljósastaur í hverfi 270, slysalaust en bifreiðin óökufær eftir. Tveir aðilar handteknir og vistaðir í fangaklefa eftir að hafa velt bíl sínum í hverfi 116, mennirnir báðir ölvaðir og voru ekki alveg vissir á hvor var að aka bifreiðinni.