Mikið var um partýhald á borgarbúum síðastliðna nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar og má teljast líklegt að einhver þeirra megi rekja til gleði landans yfir árangri Daða og félaga í Eurovision keppninni í gærkveldi. Ölvunar- og ofsaakstur og rafskútuslys eru einnig fyrirferðarmikil í dagbók gærkveldsins.
Rafskútuslys áberandi
Þrjú rafskútuslys voru tilkynnt lögreglu. Klukkan 23:42 var komið að ölvuðum manni í Vestubæ Reykjavíkur og lá leiguhlaupahjól við hlið hans. Maðurinn var töluvert blóðugur í andliti, efri vör hans mjög bólgin og tvær tennur brotnar. Sjúkrabifreið kom á vettvang og hlúði að manninum en hann aftók far á Bráðadeild. Fjórum mínútum síðar var tilkynnt um annað rafskútuslys í Hafnarfirði þar sem kona lá meðvitundarlaus og blóðug eftir fall af rafhjóli. Þriðja rafskútuslysið varð í Vesturbænum undir morgun en ekki er vitað um meiðsl á viðkomandi.
Drukkið fólk til ama
Töluvert var um drukkið fólk sem var til ama og óskunda og látið sofa úr sér vímuna í boði lögreglunnar. Annar eins fjöldi var stöðvaður fyrir ofsaakstur á götum borgarinnar, sumir undir áhrifum áfengis og/eða lyfja. Aðrir fóru yfir á rauðum ljósum og í einu tilfelli var bíllinn mannaður fólki langt fram yfir það sem löglegt er. Eitthvað var um réttindalausa ökumenn.
Slegist í sportvörubúð
Athygli vekur útkall í sportvöruverslun á Stórhöfuðborgarsvæðinu snemma í gærkvöld þar sem tveimur mönnum hafði lent saman. Kalla þurfti til lögreglu til að stía þeim í sundur. Báðir fengu mennirnir áverka og þurfti annar þeirra far með sjúkrabifreið á Bráðadeild. Ekki er vitað til þess hvað olli ofsareiði mannanna í sportvöruversluninni en vissulega vakna spurningar.