Hinn 27 ára gamli, Anton Sveinn McKee, margfaldur Íslandsmeistari í sundi og þrefaldur Ólympíufari, missti föður sinn í desember á síðasta ári. Þrátt fyrir missinn dró hann ekkert úr ferðinni og var staðráðinn í að toppa sig á Ólympíuleikunum í Tókýó, sem fóru fram sex mánuðum eftir fráfall föður hans.
Anton náði ekki markmiðum sínum á leikunum og ákvað í kjölfarið að taka sér hvíld frá keppni og sleppa þar með heimsmeistaramótinu í Abú Dabí.
„Það var kominn tími til þess að hlusta á líkamann og hausinn enda voru viðvörunarbjöllurnar löngu byrjaðar að klingja,“ sagði Anton í viðtali við Dagmál, frétta- og menningarlífsþátt Morgunblaðsins.
Anton viðurkennir að hann hefði þurft lengri tíma til að vinna úr föðurmissinum. „Ég hefði átt að eyða miklu meiri tíma í að syrgja pabba en í staðinn setti ég allt í það að skara fram úr á Ólympíuleikunum,“ sagði Anton.
Föðurmissirinn hafði vitanlega mikil áhrif á keppnistímabilið hjá sundmanninum og undirbúning og frammistöðu hans í Japan. Samt sem áður ætlaði hann sér stóra hluti á leikunum.
„Ólympíuleikarnir í Tókýó voru gríðarleg vonbrigði fyrir mig,“ sagði Anton, en segist hafa gert sitt besta.
„Ég reyndi að gera mitt besta úr erfiðri stöðu enda ætlaði ég mér að toppa á Ólympíuleikunum sem tókst ekki og jörðin féll í raun bara undan mér,“ sagði Anton meðal annars.