Ósk Tryggvadóttir, sem er líklega þekktasta OnlyFans-stjarna Íslands, er enn að jafna sig eftir nýlega heimsókn í gæludýraverslun. Henni fannst hreinlega ógeðslegt að horfa upp á meðferðina á dýrunum í umræddri verslun.
Ósk segir frá upplifun sinni í fjölmennum hópi hundaeigenda á Facebook, Hundasamfélagið. Sjálf vakti hún landsathygli er hún steig fram og greindi frá framleiðslu sinni á klámefni á OnlyFans.
Við skulum gefa Ósk orðið:
„Ég fór inni dýrabúðina í fyrsta sinn um daginn og sá hversu illa farin dýrin sem þau selja eru …Enginn dýr geta lifað í svona litlum rímum???,“ segir Ósk í áfalli og bætir við: