Almenningur getur að nýju haldið á gosstöðvarnar á Reykjanesskaga eftir að opnað var fyrir umferð nú snemma í morgun. Opið verður fyrir umferð til klukkan sex síðdegis og svæðið rýmt á miðnætti eins og oft áður.
Í gær var mikil gasmengun á gossvæðinu og því þurfti lögregla á loka svæðinu fyrr en venjulega og fólk var því rekið heim um átta í gærkvöldi. Nú í morgun var bjartviðri á gosstöðvunum en snjór yfir gönguleiðum. Fólk sem stefnir á að mæta í dag er hvatt til að mæta vel búið til göngunnar.
Björgunarsveitir hafa breytt stikuðu aðalgönguleiðinni að eldgosinu þannig að ekki þarf lengur að nýta kaðalinn í bröttustu brekkunni
Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Þá hefur leiðin verið stikuð alla leið að nýju gígunum sem opnuðust í vikunni.