Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komist að nafni mannsins sem fannst látinn í Breiðholti, neðan Erluhóla, á dögunum. Hann hét Örn Ingólfsson og var 83 ára.
Enginn hafði tilkynnt hvarf hans og virtist enginn sakna hans. Ekkert saknæmt er talið hafa átt sér stað. Málið hefur vakið talsverða athygli því sjaldgæft er að enginn veiti því eftirtekt ef Íslendingur hverfur skyndilega.
Lík Arnar heitins fannst í rjóðri fyrir neðan Erluhóla og var talið hafa verið þar í nokkurn tíma. Ekki er fyllilega ljóst hvenær hann lést en ljóst er að það eru nokkrir mánuðir síðan.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar kennslanefnd ríkislögreglustjóra fyrir veitta aðstoð við rannsókn málsins í tilkynningu.