Hópsmit kom upp í fangelsinu að Litla-Hrauni og smitaðir fangar því komnir í einangrun.
Greindi Vísir frá því að föngum hafi ekki verið hleypt út í morgun og fengu þeir morgunmat seinna en venjulega.
Þá kemur fram að fangarnir séu ósáttir við aðgerðirnar, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfesti í samtali við Vísi að hópsmit hafi komið upp, og að milli 15 – 20 hafi greinst smitaðir.
Nú sé unnið að smitrakningu til þess að hægt sé að átta sig á útbreiðslunni innan fangelsisins.
Takmarkanir séu í gildi á meðan því stendur.
Mannlíf sendi Páli fyrirspurn varðandi hópsmitið og verður fréttin uppfærð þegar svör berast.
Þá var meðal annars spurt út í hlutfall bólusettra fanga og hvort fangaverðir hafi smitast.