- Auglýsing -
„Kóvíðfaraldurinn er nú kominn í hæstu hæðir. Það mun taka marga mánuði fyrir hann að ganga yfir með slíkri útbreiðslu, “ segir bókmennta- og stjórnmálagúrúinn Egill Helgason.
Bætir við:
„Á sama tíma situr starfsstjórn – ríkisstjórn sem hefur ekki fullt umboð til að stjórna landinu og getur takmarkað beitt sér. Það er náttúrlega ekki gott þegar stefnir í neyðarástand. Verkefnin tengjast ekki bara sóttvörnum heldur efnahagslegum og félagslegum aðgerðum á farsóttartímum.“
Egill er klár á því að „það sem tefur er málareksturinn í kringum talninguna í Borgarnesi. Ég held að menn verði að gjöra svo vel að ljúka honum, kalla Alþingi saman og mynda ríkisstjórn – hið fyrsta. Mette Fredriksen forsætisráðherra ávarpaði dönsku þjóðina vegna kóvíd í fyrrakvöld – ráðamenn íslensku þjóðarinnar þurfa að stíga fastar inn. Við eigum erfiða mánuði í vændum.“