Skömmu eftir klukkan átta í gærkvöldi var lögregla kölluð út í verslun í Hlíðunum í Reykjavík en hafði karlmaður sem var ofurölvi sofnað inni í versluninni.
Þá var ölvaður karlmaður í Smáralind sem hafði látið illa og verið til vandræða. Lögrega mætti á vettvang og vísaði manninum út.
Umferðaróhapp varð í gærkvöld í hverfi 108. Ökumaður og farþegi í annarri bifreið voru fluttir rakleitt á bráðamóttöku til aðhlynningar en bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn og því fjarlægðir með dráttarbifreið.
Lögreglu var gert viðvart um tvö innbrot í heimahús, annað átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur og hitt í Hafnarfirði. Auk þess voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.
Það var svo undir morgun, eða klukkan fimm í nótt sem að tilkynning barst um dyraat í miðbænum. Ekki er vitað hvað einstaklingnum gekk til en prakkarastrikið féll ekki vel í kramið hjá íbúum.