- Auglýsing -
Myndbandið sýnir hjólreiðamann koma á fleygiferð út úr runna og stökkva af gangstétt í veg fyrir bíl.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hjólreiðamann koma á mikilli ferð inn á gangbraut á Urðarbraut í Kópavogi og verða fyrir bíl. Mbl.is greindi fyrst frá. Atvikið átti sér stað í síðustu viku.
Í frétt mbl.is segir að meiðsli mannsins séu minni háttar en maðurinn var ekki með hjálm. Þar er haft eftir Heimi Ríkarðssyni, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni í Kópavogi, að málið sé til rannsóknar. Hjólið og bíllinn skemmdust.