Orðrómur
Séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, er fjúkandi reiður vegna meintrar afskræmingar Agnesar Sigurðardóttur biskups á Jesú Kristi sem fékk kvenmannsbrjóst í auglýsingu Þjóðkirkjunnar. Auglýsingunni, sem beint er að börnum, var að sögn ætlað að auka víðsýni fólks og undirstrika umburðarlyndi kirkjunnar varðandi kynhneigð fólks og kynvitund.
Séra Geir metur frammistöðu biskups sem skemmdarverk gagnvart stofnuninni og auglýsingamennsku. Annar sem tekur undir gagnrýni á Agnesi er Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sem spyr hvort María góðsmóðir megi vænta þess að fá skegg í meðferð kirkjunnar. Davíð og Geir tengjast að því leyti að börn þeirra eru hjón.
Agnes á marga óvini innan Þjóðkirkjunnar eftir ýmis umdeild verk og ekki síst að hafa rekið séra Skírni Garðarsson úr embætti. Brjóstamyndin af Jesú hefur enn fjölgað þeim sem telja Agnesi óhæfa til að gegna æðsta embætti Þjóðkirkjunnar.