Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður leitar eftir aðstoð almennings, eða réttara sagt myndum sem þeir kunna að eiga af trukkum í Gleðigöngu Hinsegin daga.
Páll Óskar hefur sjálfur tekið þátt í göngunni og vekur trukkur hans jafnan mikla athygli, enda mikið í hann lagt ár hvert.
„Í tilefni af 20 ára afmæli Gleðigöngunnar á Hinsegin Dögum erum við að safna góðum ljósmyndum af trukkum síðustu 20 ára fyrir ljósmyndasýningu. Við getum ekki borgað fyrir myndirnar, en nöfn allra ljósmyndara koma fram,“ segir Páll Óskar.
„Ef þú manst eftir að eiga stórkostlega(r) ljósmynd(ir) af einhverjum trukkum (árin 2000 til 2019) þá væri yndislegt ef þú gætir sent þær í hæstu mögulegu gæðum á netfangið mitt [email protected].“