ORÐRÓMUR Meðal þeirra sem hafa hjólað í Ólaf Helga Kjartansson sýslumann er Páll Magnússon alþingismaður Sjálfstæðisflokksins sem dómsmálaráðherra vill senda til Vestmannaeyja.
Páll þykir atkvæðalítill þingmaður og þarf á því að halda að auka vinsældir í kjördæminu. Setið er um sæti hans og líklegra en ekki að hann verði felldur fyrir næstu kosningar.
Meðal þeirra sem nefndir eru til leiks er Elliði Vignisson bæjarstjóri sem féll í síðustu sveitarstjórnarkosningar og hraktist til Þorlákshafnar.
Páll gæti nýtt sér sýslumannsmálið í Reykjanesbæ til að styrkja vonlitla stöðu sína …