Páll Steingrímsson, skipstjóri Samherja, tjáir sig um sameiningu Stundarinnar og Kjarnans:
„Fjárfestar, sem lagt hafa fé í Kjarnann og Stundina, sátu uppi með ónýta fjárfestingu og skaddað mannorð.“
Bætir við:
„Rökrétta en siðlausa leiðin var að leggja útgáfurnar niður og stofna nýja. Kennitöluflakk er viðtekin aðferð þeirra sem skilja eftir sig sviðna jörð hvar sem þeir koma. Nýtt er að siðleysingjarnir biðli ákaft til almennings að slást með i för, hefja glæpi til vegs og virðingar.“
Páll segir að „Stundin og Kjarninn lutu báðir ritstjórnarvaldi RÚV, sem var miðstöð glæpsins gegn Páli skipstjóra. Eða dettur einhverjum heilvita í hug að það hafi verið tilviljun að Kjarninn og Stundin birtu samtímis fréttir upp úr síma skipstjórans morguninn 21. maí 2021? Nafn á nýju útgáfuna er ekki komið. Hér er tillaga: Gróa á Glæpaleiti.““