Kaffihús víða um Frakkland voru opnuð aftur í gær eftir ellefu vikna lokun vegna kórónuveirufaraldursins.
Prísarbúar flykktust á kaffihús borgarinnar í gær og gæddu sér á kaffi og öðrum veitingum á útisvæðum þar sem ekki er leyfilegt að sitja inni af sóttvarnarástæðum. Sömuleiðis mega viðskiptavinir ekki drekka né borða standandi við barborð kaffihúsanna. Þetta er meðal þeirra reglna sem eru enn í gildi á frönskum kaffihúsum.
Þá er starfsfólki franskra kaffihúsa gert að sjá til þess að minnst metri sé á milli borða á útisvæðum.
Viðmælandi New York Times segir þetta vera stóra stund í lífi Parísarbúa þar sem kaffihús spila stórt hlutverk í þeirra daglega lífi. „Við höfum beðið spenntir eftir þessari stund,“ sagði annar.