„Þegar maður er kominn á þennan aldur þá er heilsan bara númer eitt. Þess vegna ákvað ég að ganga inn á heilsugæsluna í gær og fá sprautuna. Ég finn bara ekkert fyrir þessu í dag,“ segir Pétur í samtali við Mannlíf. Hann er ríflega sjötugur að aldri og hefur verið lengi búsettur í St. Pétursborg.
Aðspurður segir hann hvergi hafa hikað varðandi það að þiggja bóluefnið rússneska. „Nei, það held ég að sé algjör óþarfi. Enda eru nú að berast hinar bestu fréttir af 92 prósent virkni bóluefnisins. Ég treysti Rússunum bara alveg ljómandi vel fyrir þessu og ég hafði engar áhyggjur af þessu. Það var engin bið, frábær þjónusta,“ segir Pétur.
Eins og áður sagði fékk Pétur fyrri sprautuna í gær og þarf svo að fá síðari sprautuna síðar í mánuðnum. Að hans mati er hið eina slæma við að hafa nú veirð bólusettur fyrirmælin eftir sprautuna. „Þarf nú að taka það aðeins rólega og ekki dropa sterkara en blávatn næstu þrjá dagana,“ segir Pétur kíminn.