- Auglýsing -
Breski leikarinn Pierce Brosnan þakkar Húsvíkingum fyrir gestrisni þeirra og birtir mynd af bænum í nýjustu færslu sinni á Instagram.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur leikarinn verið staddur þar í tökum undanfarna daga ásamt Will Ferrell og Rachel McAdams á Eurovision kvikmynd Ferrell. Í myndinni fer Brosnan með hlutverk Erick Erickssong, föður aðalpersónunnar og eins heitasta piparsveins Íslands.
„Tökudögum lokið í fallegu Húsavík Íslandi með Will Ferrell og Rachel McAdams. Það var frábært að vera hluti af Eurovision fjölskyldunni. Takk Húsavík fyrir hlýjar mótttökur.“