Hið nýja íslenska lággjaldaflugfélag, Play, stefnir á að hefja flug í júní og verða fyrstu áfangastaðirnar borgirnar Alicante, Kaupmannahöfn, Lundúnir og París ásamt hinum vinsæla áfangastað Tenerife. Forstjóri flugfélagsins, Birgir Jónsson, segir félagið að fullu fjármagnað.
Birgir ræddi áform félagsins í Víglínunni í gær og tók þar fram að miðasala hefjist síðar í mánuðnum. Félagið réðst nýlega í hlutafjáraukningu þar sem söfnuðust rúmir 6 milljarðar króna. Þá tók Birgir það einnig fram að flug til Bandaríkjanna komi einnig til greina hjá félaginu.
„Og í raun og veru svo vel fjármagnað að við eigum nóg fé til að hefja ekki starfsemi í tvö ár. Þannig að það liggur ekkert á hjá okkur að hefja flug eða til dæmis að taka næsta skref í Bandaríkjaflug. Við getum gert þetta nákvæmlega á þeim forsendum sem hentar okkur og markaðnum,“ segir Birgir og hafnar allri umræðu um gerviverktöku og félagsleg undirborð:
„Við erum íslenskt flugfélag með íslenskt flugrekstrarfélagi. Þannig að það verður ekkert í okkar rekstri sem stenst ekki skoðun eða er eitthvað óeðlilegt. Við erum með góða samninga við íslensk stéttarfélög og munum dansa eftir þeim leikreglum sem tíðkast á íslenskum atvinnumarkaði. Allt tal um gerviverktöku eða félagsleg undirboð eða áhafnarleigur frá lágkostnaðar löndum eru kjaftasögur og misskilningur.“