Nýja flugfélagið PLAY ætlar að gefa 1.000 flugmiða.
Forsvarsmenn nýja flugfélagsins PLAY kynntu áform sín á blaðamannafundi í Perlunni í dag. Þar kom meðal annars fram að flugfélagið PLAY ætli að byrja á að gefa 1.000 flugmiða á vefsíðu sinni.
„Hvorki meira né minna,“ sagði forstjóri PLAY, Arnar Már Magnússon, á fundinum þegar hann greindi frá þessu.
Hægt er að skrá sig til leiks á vef PLAY og komast þannig í pottinn. „Drífðu þig fremst í röðina! til að fá upplýsingar um hvenær sala hefst. Á síðunni okkar verða 1.000 frímiðar í boði, þú finnur þá í bókunarferlinu,“ segir á vefnum um gjafaleikinn.
Miðasala á vef PLAY hefst síðar í þessum mánuði.
Sjá einnig: WAB verður Play