- Auglýsing -
Fyrstu þúsund farþegarnir sem bóka flug hjá lággjaldaflugfélaginu nýja, Play, fá gefins flugsæti. Miðasala félagsins er nú hafin og er þar hægt að bóka ferðir til Alicante, Barcelona, Berlínar, Kaupmannahafnar, Lundúna, Parísar og Tenerife.
Mikið álag hefur verið á vefsíðu flugfélagsins nú í morgunsárið en samkvæmt upplýsingum frá félaginu er enn hægt að næla sér í frítt flugsæti og bókunarskilmála Play eru sveigjanlegir vegna Covid-19.