Flugfélagið Play er langt komið með undirbúning við að hefja miðasölu á netinu. Félagið var að uppfæra heimasíðuna þar sem ítarlegri upplýsingar um starfsteymi flugfélagsins og fyrir hvað það stendur kemur fram.
Líkt og Mannlíf greindi frá stefnir Play á að hefja flug með haustinu og nú styttist óðum í að bókunarvél flugfélagsins fer í loftið. Á vefsíðunni getur þú skráð þig til leiks þar sem gefnir verða flugmiðar til meðlima ásamt því að þér verður tilkynnt um það sérstaklega þegar miðasalan formlega hefst. Þá hefur verið opnað fyrir skráningu þar sem Evrópubúar og Bandaríkjamenn geta skrá’ sig með svipuðum hætti.