„Hvernig getur Hagkaup réttlætt þennan verðmun?“ segir Ágústa inn á grúppunni Vertu á verði á Facebook. Þar vekur hún athygli á óeðlilegum verðmun á pollagöllum frá CeLaVi. Hjá Hagkaup kosta þeir 13499 krónur en hjá Yrju á Selfossi 8490 krónur. Munurinn er 59 prósent.
Mannlíf leitaði viðbragða hjá Hagkaup til að kanna hvernig stæði á þessum verðmun og fékk eftirfarandi svar frá Brynjari Helga Ingólfssyni, innkaupastjóra hjá Hagkaup.
Þessi verð eru undir okkar kostnaðarverði og okkur er ekki heimilt að selja vörur undir kostnaðarverði. Hér er eitthvað sem ekki stemmir og við munum skoða það með okkar birgja sem er Sport Company.