Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og glæpamenn héldu að mestu kyrru fyrir. Brotlegir ökumenn voru helst á ferli.
Maður í annarlegu ástandi missti stjórn á sér og lagðist í skemmdarverk. Hann var handtekinn í austurborginni og gistir í fangageymslu þar til dagur rís.
Eldur varð laus í skrifstofuhúsnæði við Fellsmúla. Engin slys urðu á fólki en umtalsverðar skemmdir.
Ökumaður var stöðvaður í hverfi 200 grunaður akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku.
Ökumaður stöðvaður við almennt eftirlit í Kópavogi. Þá kom á daginn að kona sem ók var réttindalaus og karlmaður, sem var farþegi í farþegi í bifreiðinni, var með fíkniefni á sér. Parið var látið laust að loknum afskiptum. Skýrsla verður rituð um málið.
Líkamsárás átti sér stað í heimahúsi í Breiðholti. Einn maður handtekinn og hann læstur inni í fangageymslu.
Ökumaður stöðvaður í úthverfi Reykjavíkur, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreiðinni fundust meint fíkniefni. Ökumaðurinn var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu.