Ræningi réðst inn í verslun í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í gær og ógnaði og veittist að starfsmanni verslunarinnar. Síðan hjóp ræninginn á brott en lögregla náði honum um klukkustund síðar og fékk hann að gista í fangageymslu lögreglunnar.
Um klukkan hálf átta í gærkvöld var lögreglu tilkynnt um skrifborð á miðri akbraut á Suðurlandsvegi sem truflaði umferð.
Lögregla var kölluð út í nótt vegna ökumanns sem var meðvitundalaus í bifreið sinni út á miðri götu. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist maðurinn í annarlegu ástandi og undir áhrifum fíkniefna. Afskipti lögreglunnar féllu í grýttan jarðveg hjá manninum og sýndi hann ógnandi hegðun. Maðurinn var handtekinn og gisti einnig í fangaklefa.
Þónokkur verkefni voru hjá lögreglunni tengd hávaða og ölvuðum aðilum sem voru með læti.