Nóttin var með allra rólegasta móti hjá lögreglunni. Það bar helst til tíðinda að réttindalausir ökumenn voru á ferli. Lögreglan gómaði nokkra þeirra.
Ökumaður var stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í ljós kom að hann hafði verið sviptur ökuréttindum og brot hans því margþætt.
Vinnuslys varð í austurborginni í gær þegar rafgeymir sprakk í höndum manns. Hann hlaut áverka á andliti og höndum.
Búðaþjófur var við iðju sína í Garðabæ í gærdag. Óljóst er með niðurstöðu þess máls. Á sömu slóðum var glæpamaður handtekinn fyrir vopnaburð og þjófnað.
Í dagbók lögreglu sefgir að „krakkar að erlendum uppruna“ hafi ráðist á stúlku í Breiðholti og hrifsað af henni eigur sem hún bar með sér. Málið í skoðun.
Sprautað var úr slökkvitæki í verslunarmiðstöð í Breiðholti.