Rakel Þorbergsdóttir hefur ákveðið að láta af starfi fréttastjóra Ríkisútvarpsins um komandi áramót. Hún hefur gegnt starfinu í rúm 7 ár. RÚV greinir frá þessu í tilkynningu. Rakel hefur verið farsæl í starfi og notið umtalsverðra vinsælda sem stjórnandi
Starf fréttastjórans verður auglýst laust til umsóknar eftir áramót. Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri mun gegna starfi fréttastjóra frá því að Rakel lætur af störfum um áramótin og þar til nýr fréttastjóri hefur verið ráðinn.
Fram kemur í tilkynningunni að Rakel hafi unnið á fréttastofum RÚV í 22 ár.
„Ákvörðun mín var því ekki auðveld, fréttastofan er frábær vinnustaður en það er öllum hollt að breyta til og takast á við nýjar áskoranir,“ er haft eftir henni í tilkynningunni.
Segist Rakel kveðja félaga sína með söknuði. Ekki er gefið upp hvort hún hafi fengið nýtt starf eða sé einfaldlega að halda út í óvissuna.