Saksóknaraembættið í Svíþjóð hefur látið rannsókn niður falla á nauðgun sem Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er sagður hafa gerst sekur um í Stokkhólmi árið 2010. Eva-Marie Persson, saksóknari, greindi frá þessu á blaðamannafundi í hádeginu er fram kemur á vef BBC. Persson sagði ástæðuna vera ónæg sönnunargögn.
Sænsk kona ásakaði Assange um nauðgun eftir að þau hittust á WikiLeaks-ráðstefnu árið 2010 en Assange hefur alltaf hafnað ásökununum.
Assange hefur setið í fangelsi í Bretlandi frá því í apríl, frá því að hann var sóttur í sendiráð Ekvador í London þar sem hann hafði dvalið frá árinu 2012. Eftir að hann var handtekinn ákváðu sænskir saksóknarar að taka málið upp að nýju en rannsókninni hafði verið hætt árið 2017.
Assange á yfir höfði sér ákærur í Bandaríkjunum, meðal annars fyrir uppljóstranir og leka á trúnaðargögnum og vilja Bandarísk yfirvöld fá hann framseldan.
Mynd / EPA