Garðar Örn Hinriksson, oftast kallaður Rauði baróninn er einn umdeildasti knattspyrnudómari Íslandssögunnar. Fyrir jól kom út sjálfsævisaga hans þar sem hann fer yfir ferilinn og fleira áhugavert í lífi hans. Einn kafli í bókinni vekur meiri athygli en aðrir en það er montsaga af því þegar hann fór í trekant með tveimur konum úr efstu deild kvennaknattspyrnunnar.
Dv segir frá þessu í dag en nýlega kom bókin hans út á Storytel en hann les sjálfur upp úr henni.
Hér fyrir neðan er frásögnin af trekantinum:
„Ég slysaðist eina helgina árið 2004 inn á Hverfisbarinn með félögum mínum, stuttu eftir að ég hafði verið valinn dómari ársins. Áður en ég yfirgaf staðinn rakst ég á félaga minn sem var með þremur stelpum úr boltanum sem ég kannaðist aðeins við en þekkti ekki persónulega,“ skrifar Garðar í bókina sína Rauði baróninn
„Ein af þeim var kærastan hans og ætluðu þau rétt að kíkja í einn bjór áður en þau færu heim. Til að gera langa stuttu þú hurfu kunningi minn og kærastan fljótlega en hinar tvær urðu eftir. Einnig lét félagi minn sig fljótlega hverfa svo ég sat einn eftir með þeim“
Til að byrja með veittu þær Garðari litla athygli en um leið og þær vissu hver hann var, breyttist fas þeirra til muna.
„Þær virtust ekki þekkja mig í sjón og veittu mér litla athygli í fyrstu, en um leið og þær komust að því hver ég var breytist allt. Andlitið greinilega ekki jafn sterkt og nafnið, allt í einu var farið að koma fram við mig eins og ég væri hálfgerður guð. Bjórnum var slátrað á 0,1 og næst var beðið um tequila á borðið og svo meira tequila. Allt í einu var kominn töluverður hiti í mannskapinn.“
Áður en Garðar vissi voru þau komin á dansgólfið þar sem tók að hitna heldur betur í kolunum. „Þær drógu mig út á dansgólfið þar sem við kysstumst og enginn líkamspartur var látinn í friði, ég tók eftir því að flestir voru farnir að fylgjast með okkur en mér var alveg sama. Ég var þarna með tveimur gullfallegum stelpum úr efstu deild kvenna í fótboltanum á miðju dansgólfi. Þær í stuði og greinilega til í eitthvað meira en koss og káf“
Áður en leið á löngu héldu þau öll þrjú heim á leið. „Stuttu síðar drógu þær mig út og kölluðu á leigubíl og heim til annarrar þeirra, þar sem stuðið var síst minna en á Hverfisbarnum. Eftir fjöruga nótt lagðist ég til hvíldar.“
Þegar leiknum var lokið gerði Garðar heiðarlega tilraun til að ná smá svefni en ekki náði hann að hvíla sig mikið.
„Ég held ég hafi ekki sofið í meira en klukkutíma þegar ég vakna við það að þær eru að leika hvor við aðra, ég þóttist vera sofandi því ég var þreyttur. Það breytti engu, rétt á eftir var bankað í öxlina á mér og mér boðið í þriggja manna partý. Að vísu dauðþreyttur en lét mig hafa það“
„Ég var hálf feginn þegar þetta var afstaðið og beið eftir að þær sofnuðu, svo ég gæti læðst út.“