Verkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefjast kl 12.30 í dag og stendur til miðnættis. 1.850 starfsmenn borgarinnar leggja þá niður störf.
Verkfallsaðgerðirnar munu skerða þjónustu leikskóla borgarinnar, velferðarþjónustu og sorphirðu.
Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borginni á um 129 starfsstöðvum. Mest verða áhrif verkfallsaðgerða á skóla- og frístundasviði þar sem um eitt þúsund Eflingarstarfsmenn starfa, stór meirihluti þeirra starfar í leikskólum. Í sumum leikskólum skerðist opnunartími í lok dagsins og í öðrum þarf að loka deildum og senda börn heim.
Reiknað er með að 3.500 börn verði sótt um hádegisbil.
Efling- stéttarfélag hefur fallist á að veita undanþágu til að hægt sé að sinna nauðsynlegri félags- og öryggisþjónustu á Velferðarsviði er snýr að umönnun fatlaðs fólks, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og þeirra sem þurfa á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar.
Verkfallsaðgerðirnar í dag hefjast með baráttufundi í Iðnó klukkan 12.30.